today-is-a-good-day

Íslensk ábreiða af Outkast í 1. sæti hjá Paste Magazine

Tónlist

Í gær (28. febrúar) birti vefsíðan Paste lista yfir átta frábærar, djassaðar 
ábreiður af þekktum popplögum:

https://www.pastemagazine.com/…

Höfundur greinarinnar, Alexa  Peters, segir að „djassaðar ábreiður af þekktum 
popplögum samtímans … njóti ákveðinna vinsælda“ og rekur hún sögu þeirra til 
Scott nokkurs Bradlee sem stýrir Youtube rásinni Postmodern Jukebox.

Meðal þeirra átta laga sem rötuðu á lista blaðamanns eru ábreiður af lögum á borð við Smells Like Teen Spirit, Rolling in the Deep og Blackbird. 

Í efsta sæti listans er túlkun íslensku djasssveitarinnar 6iJazz á laginu Hey Ya eftir bandaríska tvíeykið Outkast.

„Þessi ábreiða eftir íslensku sveitina 6iJazz endurhugsar lagið Hey Ya eftir Outkast sem hægt, blúsað lag þar sem trompet og saxófónn eru í broddi fylkingar. Þéttu lúðrarnir spila með líkt og þetta sé götuband frá New Orleans sem marsérar niður göturnar.“

– Alexa Peters

Hér fyrir neðan má hlýða á lagið:

Auglýsing

læk

Instagram