Nýtt frá Bon Iver

Í dag sendi Bon Iver frá sér textamyndband við lagið 33 God.

Lagið er af væntanlegri plötu Bon Iver, 22, A Million en platan kemur út 30. september á vegum Jagjaguwar.

Þetta er fyrsta platan sem Bon Iver gefur út frá því að platan Bon Iver, Bon Iver kom út árið 2011. 22, A Million var að mestu tekin upp í hljóðveri Justin Vernon í Wisconsin (April Base Studios).

„22 A Million er að hluta til ástarbréf og að hluta til jarðarför þeirrar tveggja áratuga leit okkar af sjálfsskilningi. Einnig má segja að platan geymi ákveðna sátt sem fylgir því að vita að maður finnur kannski aldrei þennan skilning … ef Bon Iver, Bon Iver reisti búsvæði sem grundvallaðist á efnislegum svæðum, þá sleppur 22, A Million tengingunni við þann stað.

– Yfirlýsing Bon Iver til fjölmiðla

Ásamt 33 God hafði hljómsveitin einnig deilt tveimur öðrum lögum af væntanlegri plötu: Bob Moose Extended Cab útgáfunni af 22 (OVER S∞∞N) og lengri útgáfunni af 10 d E A T h b R E a s T.

Auglýsing

læk

Instagram