Reykjavíkurdætur með nýjan ,banger’ (BNGRBOY + RVKDTR)

Í gærkvöldi sendu Reykjavíkurdætur frá sér nýtt lag. Lagið ber titilinn Kalla mig hvað? og er það pródúserað af Marteini einnig þekktur sem BNGRBOY. Hljóðblöndun og upptaka var í höndum Gests Sveinssonar. 

SKE spjallaði við Steinunni Jónsdóttur í gær og sagði hún okkur um lagið í stuttu máli:

„Við frumfluttum lagið í beinni hjá hollenska ríkissjónvarpinu þegar við spiluðum á Eurosonic tónlistarhátíðinni. Við tókum upp myndband fyrir viku og ætlum að halda heljarinnar frumsýningarpartý á valentínusardaginn sem öllum elskendum er boðið í þannig bara um að gera að fólk byrji að leita sér að deiti … einnig er Kylfan með frábært ,comeback’ í laginu – nýskriðin úr fæðingarorlofi.“

– Steinunn Jónsdóttir

Myndbandið mun rata inn á ske.is á næstu vikum. 

Auglýsing

læk

Instagram