Spjallið með Frosta Logasyni | Fólk sækist eftir að komast á bæturnar

Spjallið með Frosta Logasyni

Lárus Guðmundsson, fyrrverandi knattspyrnuhetja og oddviti Miðflokksins í Garðabæ, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur lengi verið ötull talsmaður þess að útlendingamál á Íslandi verði tekin fastari tökum og því ekki undarlegt að hann hafi gengið til liðs við Miðflokkinn. Lárus segir Garðabæ vera orðið alltof skuldsett bæjarfélag og talar fyrir auknu aðhaldi í rekstri bæjarins. Hann gagnrýnir samning um samræmda móttöku flóttamanna sem Garðabær er nýbúinn að framlengja við íslenska ríkið og segir hann of kostnaðarsaman fyrir skattgreiðendur. Lárus segir Miðflokkinn í Garðabæ vera á móti skóla án aðgreiningar og vill hann að teknar verði aftur upp stoðdeildir og sérkennslur líkt og áður tíðkaðist. Þá segir hann flokkinn vera á móti þettingarstefnu og núverandi áætlunum um Borgarlínu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

 

- Auglýsing -