Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti voru sjaldnast sammála um pólitík og utanríkismál þegar þeir voru virkir í þjóðmálaumræðunni. En nú ber svo við að þeir snúa bökum saman í Evrópuumræðunni og mælast til varkárni.
Ólafur Ragnar var í lok janúar í Kastljósi spurður um hvað hann myndi ráðleggja ríkisstjórn Kristrúnar í Evrópumálum. Fyrrum forseti sagði tvö gömul íslensk spakmæli vera sín ráð. „Fæst orð bera minnsta ábyrgð“ annars vegar og hins vegar „allt kann sá er bíða kann.“ Spakmælin eru ótvíræð um að stjórnvöld fari sér hægt og tefli ekki hagsmunum Íslands í tvísýnu á meðan viðsjár eru jafn miklar í alþjóðamálum og raun ber vitni.
Þá sagði fyrrum forseti í Kastljósi að íslenskir ráðamenn ættu að gera tíðreist til Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna, til að kynna sér hvernig landið liggur þar vestra. Fyrir hvern einn fund sem sóttur er til Brussel, höfuðstöðva ESB, ættu ráðamenn að sækja tvo fundi í höfuðborg Bandaríkjanna, sagði Ólafur Ragnar.
Margoft til Brussel en aldrei Washington
Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, líklega i tilefni orða Ólafs Ragnars, hversu oft ráðherra farið til Brussel og Washington á síðasta ári. Í svari Þorgerðar Katrínar kemur fram að ráðherra heimsótti höfuðstöðvar ESB í Brussel átta sinnum á síðasta ári en fór aldrei til Washington.
Á nýafstöðnu Iðnþingi var Geir H. Haarde fyrrverandi forsætis ráðherra spurður um Evrópusambandið. Svar hans var:
„Ég tel að þó að Evrópusambandið sé gott og gilt og hafi gert margt gott fyrir sín aðildarríki, meðal annars komið á sáttum milli gamalla óvinaþjóða á meginlandinu, þá sé vel hægt að vera góður Evrópubúi án þess að vera í Evrópusambandinu.“
Einnig var Geir inntur eftir sambandinu við Bandaríkin. Fyrrum forsætisráðherra sagði Bandaríkin eina landið er gæti varið Ísland og það yrði að passa upp á sambandið á milli ríkjanna. Ráðlegging Geirs:
„Við þurfum líka að liggja lágt, ef svo mætti segja. Við skulum ekki vera að hafa okkur of mikið í frammi.“
Ólafur Ragnar og Geir búa að áratuga reynslu að gæta hagsmuna lands og þjóðar.