Kylie Jenner fjarlægði varafyllingarnar

Snyrtivörumógúllinn og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er búin að fjarlægja allar varafyllingarnar sínar en hún hefur verið með fyllingarnar síðan árið 2014.

Hún staðfesti þetta í svari við athugasemd adáanda á mynd á Instagram en stórar og fylltar varir voru hennar helsta vörumerki og prýða meðal annars snyrtivökumerki hennar.

Kylie setti mynd af sér og vinkonu sinni Anastasiu Karanikolaou á Instagram í gær en það var glöggur aðdáandi yngstu Kardasian-systurinnar sem tók eftir því að eitthvað var öðruvísi í útliti hennar.

View this post on Instagram

heat wave

A post shared by Kylie ✨ (@kyliejenner) on

„Hún lítur út eins og gamla Kylie á þessari mynd, ég veit ekki af hverju,“ skrifaði Halei Thorn við myndina en hún var sennilega ekki að búast við svari frá henni sjálfri. „Ég losaði mig við allar fyllingarnar,“ svaraði Kylie.

https://twitter.com/phuckmaraj/status/1016130875975708672?ref_src=twsrc%5Etfw%7Ctwcamp%5Etweetembed&ref_url=https%3A%2F%2Fwww.buzzfeed.com%2Fmichellerennex%2Fkylie-jenner-lip-fillers-removed

Varirnar á raunveruleikastjörnunni hafa verið milli tannanna á fólki síðan í byrjun árs 2014 þegar sögusagnir um varafyllingar fóru á kreik. Hún sagðist fyrst aðeins nota varablýant til að „teikna“ varirnar á sig og því væru þær svo stórar.

Kylie viðurkenndi síðan í raunveruleikaþætti fjölskyldunnar að hún hafi fengið sér varafyllingar vegna mikils óöryggis með varirnar

Kylie greindi frá því fyrir stuttu að óöryggið yfir vörunum hefði haft áhrif á dóttur hennar, Stormi. Í nýlegu Youtube-myndbandi viðrkenndi Kylie að það eina sem hún hafi verið óörugg með þegar dóttir hennar fæddist hafi verið varirnar hennar.

„Það var það eina sem ég hafði áhyggjur af en hún er með fullkomnustu varir í heiminum. Hún fékk þær ekki frá mér heldur getur hún þakkað pabba sínum fyrir þær!“ sagði Kylie hlægjandi.

Aðdáendur virðast vera ánægðir með ákvörðun raunveruleikastjörnunnar um að fjarlægja varafyllingarnar, segjast glaðir að fá gömlu Kylie aftur og að hún sé ennþá gullfalleg

Auglýsing

læk

Instagram