Hyggjast þrýsta samfélagsmiðlabanni í gegn alveg sama hvað kemur út úr opinberri úttekt

Breska ríkisstjórnin hefur viðurkennt að hún hyggist innleiða takmarkanir á notkun samfélagsmiðla óháð niðurstöðu opinbers samráðs sem nú stendur yfir. Þetta kom fram í ræðu menntamálaráðherra landsins á þingi.

Segja spurninguna ekki vera hvort heldur hvernig

Samkvæmt Bailey er þegar ákveðið að gripið verði til aðgerða. Hún sagði að ríkisstjórnin væri ekki að velta fyrir sér hvort setja ætti takmarkanir, heldur einungis hvernig þær yrðu útfærðar.

Auglýsing

„Við erum að ræða um útfærsluna, ekki hvort við munum grípa til aðgerða. Takmarkanir verða settar á samfélagsmiðlanotkun, hvort sem um er að ræða einhvers konar aldurstakmarkanir eða virkni takmarkanir fyrir börn undir 16 ára aldri,“ sagði hún.

Hún bætti svo við að að ráðherra verði skylt að grípa til aðgerða að samráði loknu, óháð niðurstöðu þess.

Ráðherrar staðfestu jafnframt að verið sé að skoða frekari aðgerðir, þar á meðal mögulegan „net útivistartíma“ fyrir börn, þar sem aðgangur að samfélagsmiðlum yrði aðeins mögulegur á ákveðnum tímum sólarhringsins.

Sakar stjórnvöld um valdníðslu

Þessar aðgerðir hafa vakið upp miklar áhyggjur af ritskoðun og auknum ríkisafskiptum, bæði innan Bretlands og utan. Gagnrýnendur segja að með þessu sé verið að færa ríkinu of mikil völd yfir netnotkun borgaranna. Breska þingkonan Claire Fox hefur varað við þróuninni og segir þetta einfaldlega valdníðslu stjórnvalda.

„Að reyna að gera ritskoðun hluta af daglegu lifi í nafni öryggis er stórhættulegt,“ sagði hún og hélt því fram að með því að opna á slíkar reglugerðir yrði auðvelt að bæta svo við öðrum um eldri aldurshópa ef nógu góð afsökun kemur til sögunnar.

Það er stutt síðan Apple samsteypan lagði bresk stjórnvöld fyrir rétti í máli sem sneri að því að halda réttarhöldum gegn Apple leyndum í máli sem snýr að einhverjum umfangsmesta eftirliti með borgurum sem um getur.

Apple sigrar í deilu við bresk stjórnvöld sem vildu halda réttarhöldum leyndum

Bannið er sagt vera ætlað börnum yngri en 16 ára, en til þess að geta notað samfélagsmiðla án takmarkana munu notendur þurfa að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Þetta gerir það að verkum að ekki verður hægt að vera með nafnlausa aðganga á samfélagsmiðlum.

Nútíminn hefur þegar greint frá fyrirætlunum breskra stjórnvalda til að krefja fyrirtæki um aðgang að einkaskilaboðum allra notenda sinna.

Starmer krefst þess að fá einkagögn Íslendinga

Þrýstingur úr öllum áttum

Forsætisráðherrann Keir Starmer hefur lagt áherslu á að breytinga sé þörf og kallaði nýverið saman fulltrúa stærstu tæknifyrirtækja heims til viðræðna.

„Núverandi staða er ekki ásættanleg. Ef það þarf að takmarka aðgang barna að samfélagsmiðlum til að vernda þau, þá er það betra en að leyfa þessum skaðvaldi að halda áfram óbreyttum,“ sagði Starmer.

Stjórnarandstaðan hefur ekki lagst gegn áformunum. Þvert á móti hafa sumir gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að ganga ekki nógu langt.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing