Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur gefið út ákæru á hendur samtökunum Southern Poverty Law Center (SPLC), en um er að ræða samtök sem hafa (að eigin sögn) unnið gegn kynþáttahatri, öfgahópum og mismunun í Bandaríkjunum í áratugi.
Samkvæmt ákærunni eru samtökin sökuð um að hafa í raun fjármagnað þá hópa sem þau segjast hafa verið að vinna gegn. Yfirvöld halda því fram að greiðslur hafi meðal annars runnið til einstaklinga tengdum öfgahópum sem stóðu að eða tengdust þekktum atburðum, þar á meðal Unite the Right mótmælunum í Charlottesville árið 2017, þar sem kona lét lífið og tugir slösuðust.
Segja tilganginn hafa verið upplýsingaöflun
SPLC segist hafa byggt starf sitt meðal annars á því að rannsaka og kortleggja öfgahópa, safna upplýsingum um starfsemi þeirra og upplýsa almenning og yfirvöld. Samkvæmt ákærunni réttlættu samtökin greiðslurnar sem hluta af þeirri vinnu, meðal annars til að afla gagna um þessa hópa.
Dómsmálaráðuneytið heldur hins því vegar fram að þessi starfsemi hafi farið langt út fyrir lögleg mörk og að með þeim fjárhæðum sem um ræðir hafi samtökin í raun styrkt starfsemi öfgahópa.
Milljónir dollara runnið til öfgahópa
Í ákærunni kemur fram að á árunum 2014 til 2023 hafi samtökin gefið meira en þrjár milljónir dollara, eða um þrjú hundruð milljónir íslenskra króna, beint til að minnsta kosti átta einstaklinga sem tengjast hópum á borð við Ku Klux Klan, National Socialist Movement og fleiri samtaka sem tengd hafa verið við nasisma eða hvíta yfirburðahyggju.
Eitt dæmi sem nefnt er er greiðsla upp á um 270.000 dollara til einstaklings í leiðtogahópi skipuleggjenda Charlottesville mótmælanna. Þá er einnig tekið fram að annar aðili innan nýnasistasamtaka hafi fengið allt að eina milljón dollara fyrir að afla gagna úr starfsemi hópsins en sú starfsemi hafi í raun bara runnið beint inn í samtökin.
Yfirvöld halda því fram að samtökin hafi notað skúffufyrirtæki og fyrirframgreidd kort til að fela slóð fjármagnsins og svo virðist sem samtökin hafi verið að fjármagna öfgahópa til að barátta þeirra sýndist mikilvægari.
Hafna ásökunum og segja þær rangar
SPLC hefur brugðist við og segja ásakanirnar rangar og pólitískar. Í yfirlýsingu frá stjórnendum samtakanna kemur fram að þau telji málið byggt á misskilningi eða rangfærslum.
„Við erum harmi slegin vegna þessara ásakana, sem eru algerlega úr lausu lofti gripnar,“ segir í yfirlýsingunni, þar sem bent er á að samtökin hafi í áratugi unnið gegn hatri og ofbeldi.
Þau halda því fram að starfsemi þeirra, þar á meðal samskipti við einstaklinga innan öfgahópa, hafi verið liður í því að rannsaka hættulega starfsemi með því markmiði að draga úr henni, ekki styðja hana.
Málið er enn á frumstigi.
While raising hundreds of millions of dollars from neurotic left-wingers via direct mail by stoking fear of surging „hate groups,“ the SPLC literally paid someone more than $270,000 to, among other things, plan and organize the Unite the Right rally in Charlottesville, VA. The… pic.twitter.com/wF7gZ3wbWV
— Blake Neff (@BlakeSNeff) April 21, 2026