Unnar Þór Sæmundsson, laganemi og frambjóðandi fyrir Pírata, mætti í þáttinn Fullorðins en þar lýsir hann því hvernig börn hafi á sínum tíma verið send í vistun á Bakkakoti á vegum barnaverndar. Hann skellir fram spurningum um ábyrgð þeirra sem komu að ákvörðunum á þeim tíma en Unnar var einn af þeim drengjum sem vistaðir voru í Bakkakoti og urðu þar fyrir ofbeldi.
Spyr um hlutverk barnaverndar og nefnir tengsl við Bakkakot
Unnar ræðir sérstaklega hlutverk Kolbrúnar Baldursdóttur, sem starfaði hjá barnavernd Kópavogs á þeim tíma sem málið átti sér stað. Unnar segir að hún hafi verið meðal þeirra sem komu að því að senda börn í Bakkakot, sem sem fjöldi drengja var misnotaður og beittur ofbeldi. Unnar spyr hvað hafi legið að baki þeim ákvörðunum.
Þá nefnir hann einnig Ásthildi Lóu Þórsdóttur og segir hana hafa verið skemmta sér með fjölskyldunni í Bakkakoti stuttu áður en umfjöllunin hafi átt sér stað.
Segir skipulagða atlögu hafa verið gerða að sér og öðrum
Unnar segir að hann og aðrir sem stigu fram í málinu hafi orðið fyrir skipulögðum árásum á trúverðugleika sinn, meðal annars á samfélagsmiðlum. Hann segir ákveðið hafi verið að stíga varlega til jarðar og tjá sig ekki opinberlega á meðan reiði í samfélaginu var í hámarki.
Sakar Ingu Sæland um rangfærslur
Síðar í þættinum gagnrýnir Unnar Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, og segir hana hafa komið með rangar fullyrðingar um málið á opnum fundi flokksins. Þar hafi því meðal annars verið haldið fram að málið væri ekki fyrnt og að aðgerðir stæðu til af hálfu stjórnvalda. Að hans mati eru slíkar yfirlýsingar dæmi um óábyrga umræðu um viðkvæmt mál.
Unnar beinir einnig gagnrýni að stjórnvöldum og segir framgöngu þeirra í málefnum barna vera óásættanlega. Hann segir meðal annars að dregið hafi verið úr fjárframlögum til Foreldrahúss.
Hann segir að á sama tíma reyni stjórnmálaflokkar að nýta málaflokkinn sér í hag í pólitískri baráttu í borginni.
Kallar umræðuna popúlisma
Að lokum segir Unnar að það sem hann hefur orðið vitni að sé skýrt dæmi um popúlisma. Hann segir að stjórnmálamenn nýti viðkvæm mál til að styrkja eigin stöðu í stað þess að takast á við rót vandans og gagnrýnir þá nálgun.
Hann heldur því einnig fram að fundir sem áttu sér stað með stjórnvöldum, þar á meðal Kristrúnu Frostadóttur, hafi í raun verið lítið annað en sýndarmennsku og segir að einn aðili sem mætti til fundar hafi ekki ætlað að koma fram undir nafni en að hann hafi verið dreginn fyrir framan fjölmiðla „eins og sirkusdýr“ til að Kristrún og Inga gætu sýnt góðmennsku sína.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.