Sósíalistaflokkurinn kynnti nýlega frumgerð að bílastæðaappi sem flokkurinn vill að Reykjavíkurborg taki í notkun fyrir alla borgarbúa. Appið, sem ber heitið Rósa Parks, á að sameina greiðslur fyrir bílastæði í eitt kerfi án þjónustugjalda og hagnaðarkröfu.
Segja núverandi kerfi taka fé úr vösum borgarbúa
Fram kom á blaðamannafundi að tilgangurinn sé að bregðast við því sem flokkurinn kallar frumskóg bílastæðaappa, þar sem notendur þurfa að velja á milli margra mismunandi forrita með gjaldtökum og skilmálum.
Óhætt er að segja að bílastæðamál borgarinnar og hvernig greiða skuli í þau hafi valdið miklum pirringi í samfélaginu seinasta árið eða svo.
Í tilkynningu frá flokknum segir að rekstraraðilar bílastæðaappa hafi halað inn verulegar tekjur af þeim. Því er haldið fram að innlend öpp hafi samanlagt skilað hundruðum milljóna á einu ári, að stórum hluta í formi þjónustugjalda ofan á bílastæðagjöld.
Þá er bent á tengsl milli fyrirtækja á markaðnum og dregið í efa hvort um raunverulega samkeppni sé að ræða.
Frumgerð þróuð á örfáum vikum
Samkvæmt Sósíalistaflokknum tók aðeins nokkrar vikur að þróa appið og kostnaður hafi verið um 200 þúsund krónur. Appið er með sama grunnkerfi og önnur bílastæðaöpp sem notuð eru í borginni í dag.
Í kynningu á appinu er sýnt hvernig notandi getur valið bílastæðasvæði og greitt fyrir stæði með svipuðum hætti og í öðrum öppum, en án þess að greiða sérstakt þjónustugjald. Einnig sýnir myndbandið samanburð við gjaldtöku annarra aðila.
Vilja að borgin þrói eigin lausnir
Flokkurinn segist vilja afhenda Reykjavíkurborg grunnkóða appsins að gjöf og hvetur borgaryfirvöld til að þróa sína eigin stafrænu innviði í stað þess að reiða sig á einkaaðila.
Í tilkynningunni er gagnrýnt að milljarðar króna hafi farið í stafræna umbreytingu hjá borginni án þess að slík grunnlausn hafi verið þróuð innan hennar.
„Ef hægt er að búa til slíka frumgerð fyrir lítið fé á skömmum tíma, ætti borgin að geta gert mun meira með sínu bolmagni,“ segir í tilkynningunni.