Jón Pétur biðst afsökunar en ekki Þórunn þingforseti

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði alþingi og baðst afsökunar á færslu á X þar sem hann ræddi konur, geðheilsu og ,,náttúruval“.

Orð Jóns Péturs voru af sumum túlkuð sem andmæli við jafnrétti kynjanna. Hann vakti athygli á slæmri geðheilsu ungra kvenna og setti í samhengi við að konur séu í ,,flestum stjórnunarstöðum samfélagsins og eru í miklum meirihluta háskólanema samhliða því að frjósemi minnkar og skilnuðum fjölgar.“  Í framhaldi sagði þingmaðurinn: ,, Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum.“

Auglýsing

Jón Pétur leiður yfir sárindum

Í ávarpi sínu á alþingi sagðist þingmaðurinn leiður að orð hans höfuð valdið sárindum og skilin sem gagnrýni á konur og starfsval þeirra.  Jón Pétur kvaðst sjá eftir færslunni baðst afsökunar í ræðustól þingsins.

Nokkrum dögum áður en Jón Pétur skrifaði færsluna á X var Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti alþingis gestur í hlaðvarpsþætti Þorsteins V. Einarssonar kynjafræðings er kallast Karlmennskan og boðar ,,kynjað sjónarhorn á völd og viðmið.“

Þórunn segir íslenska karla fremja glæpina

Í þættinum sagði Þórunn að feðraveldið væri enn í fullu gildi og setti konum skorður. Í samhengi við ofbeldi og jaðarhópa í samfélaginu sagði forseti alþingis að  það væri þvert á staðreyndir að glæpi mætti rekja til jaðarhópa. ,,Það eru íslenskir karlar sem fremja glæpina,“ sagði Þórunn í hlaðvarpsþættinum.

Stefán Einar Stefánsson blaðamaður gerði orð Þórunnar þingforseta um íslenska karlmenn að umtalsefni í Þjóðmálum og sagði þau ,,ógeðfellda stimplun.“ Hvatti Stefán forseta alþingis að biðjast afsökunar á fullyrðingum sínum um glæpahneigð íslenskra karla.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing