Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem var oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kraganum í seinustu kosningum, hefur vakið athygli fyrir að „læka“ ummæli sem beinast gegn flokki hennar í Kópavogi. Um er að ræða ummæli frá Guðmundi Ara Sigurjónssyni, þingflokksformanni Samfylkingarinnar, þar sem hann gagnrýnir harðlega stefnu bæjarins í gjaldskrármálum.
Ummælin sem Guðmundur Ari birti voru undir við færslu Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar gagnrýndi Ásdís efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar og sagði þær ekki fela í sér raunverulegar lausnir á verðbólguvanda.
Í ummælum sínum segir Guðmundur Ari að hækkun gjaldskráa á barnafjölskyldur í Kópavogi sé í raun meiri en haldið sé fram, þar sem þær byggi ofan á fyrri hækkanir samkvæmt vísitölu. Þá segir hann 2,5 prósenta hækkun á hæstu leikskólagjöldum landsins ekki vera aðgerð sem styðji við barnafjölskyldur né dragi úr verðbólgu.


Kemur í kjölfar hlaðvarps með Degi
Þetta gerist skömmu áður en Þórdís Kolbrún hóf hlaðvarp sitt með Degi B. Eggertssyni, þingmanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra. Hlaðvarpið, sem ber heitið Flekaskil, fjallar um alþjóðamál og breytta heimsmynd, en hefur vakið athygli vegna samstarfs stjórnmálamanna úr ólíkum flokkum.
Þórdís og Dagur hafa bæði sagt markmiðið vera að skapa vettvang fyrir yfirvegaða umræðu um stór mál, utan hefðbundinna flokkspólitískra átaka.
Báðir þessara gjörninga teljast til frétta í hefðbundinni pólitík en saman hljóta þeir að vekja spurningar um hvort Þórdís sé að færa sig í átt að Samfylkingunni.