Maður játar að hafa ætlað að ráðast á tónleika Taylor Swift – Ætlaði að myrða tugþúsundir manna

Karlmaður hefur játað að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleika stórstjörnunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki fyrir dómi. Hann var ákæruður fyrir hryðjuverk og aðild að hryðjuverkasamtökum.

Árásin stöðvuð en tónleikum aflýst

Maðurinn, 21 árs austurrískur ríkisborgari af arabískum uppruna, sem nefndur er Beran A, en samkvæmt lögum um persónuvernd í Austurríki má ekki gefa upp fullt nafn hans, var handtekinn í ágúst 2024.

Auglýsing

Þrátt fyrir að árásin hafi verið stöðvuð ákváðu yfirvöld að aflýsa öllum þremur tónleikum Swift í borginni af öryggisástæðum. Tugir þúsunda aðdáenda höfðu þá þegar ferðast til Vínar til að sjá tónleikana.

Samkvæmt yfirvöldum ætlaði hann að ráðast á fólk fyrir utan leikvanginn þar sem allt að 30 þúsund manns safnast saman hverju sinni, auk þeirra 65 þúsunda sem væru inni á svæðinu. Markmiðið hafi verið að valda sem mestu dauða með hnífum eða heimatilbúnum sprengjum, en mikið af öflugum, heimatilbúnum sprengjum fannst á heimili hans. Í gögnunum kemur fram að hann hafi ætlað að drepa eins marga og mögulegt er og með slíkar sprengjur í jafn þéttum mannfjölda er talið að mannfallið hefði getað orðið gífurlegt.

Segir þetta stærstu mistök lífs síns

Verjandi hans sagði að skjólstæðingur sinn iðraðist gjörða sinna og hafi lýst þessu sem stærstu mistökum lífs síns. Saksóknarar telja að hann hafi gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin Islamic State, eða Íslamska Ríkið, og átt samskipti við aðra meðlimi þeirra.

Réttarhöldin fara fram í maí ogm aðurinn gæti átt yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsisdóm.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing