Andlát á Akureyri rannsakað sem manndráp

Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér tilkynningu í hádeginu þar sem sagt er frá að lögreglan var kölluð til í fjölbýlishús um hálf fimm aðfararnótt mánudags.

Kona fannst meðvitundarlaus á vettvangi og endurlífgun reynd en bar ekki árangur og  konan var úrskurðuð látin á vettvangi. Grunur er um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað og er málið nú rannsakað sem manndráp. Einn maður var í íbúðinni og var hann handtekinn í þágu rannsóknarhagsmuna og hefur lögregla farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum.

Ekki var hægt að fá frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Hér má sjá tilkynningu lögreglunnar í heild sinni:
„Klukkan 04:30 aðfaranótt mánudags var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð að fjölbýlishúsi á Akureyri.

Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang var vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og hófust endurlífgunartilraunir þegar í stað. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin á vettvangi.

Grunur er um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og hefur lögreglan hafið rannsókn. Í íbúðinni var annar einstaklingur og var hann handtekinn í þágu rannsóknar málsins og nýtur réttarstöðu sakbornings. Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verður lögð fram fyrir dómi í dag. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Rannsókn málsins er á frumstigi og mikil vinna framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“

Auglýsing

læk

Instagram