Ekkert samráð við þjóðina um ESB-kosningu

Þingsályktunartillaga ríkisstjórnar Kristrún Frostadóttir um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið fór ekki í opið samráð við almenning áður en hún var lögð fram á Alþingi.

Samkvæmt verklagsreglum stjórnvalda um undirbúning lagafrumvarpa og þingsályktunartillagna er almennt gert ráð fyrir að slík drög séu kynnt almenningi og hagsmunaaðilum í svokallaðri samráðsgátt stjórnvalda áður en þau eru lögð fram. Þar gefst fólki tækifæri til að kynna sér málin og senda inn athugasemdir.

Auglýsing

Í leiðbeiningum um samráðsferlið er yfirleitt gert ráð fyrir að umsagnarfrestur sé á bilinu tvær til fjórar vikur.

Lögð fram skömmu eftir kynningu

Ríkisstjórnin kynnti þingsályktunartillöguna á blaðamannafundi á föstudag og var hún síðan lögð fram á Alþingi á mánudag. Tillagan hafði því ekki áður verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem almenningur getur sent inn umsagnir.

Í 9. grein reglna ríkisstjórnarinnar um málsmeðferð segir meðal annars að drög að frumvörpum og þingsályktunartillögum skuli almennt kynnt í opnu samráði og kostur gefinn á umsögnum og ábendingum.

Í sömu grein er þó tekið fram að hægt sé að víkja frá því ef sérstök rök mæla gegn slíkri birtingu, til dæmis ef mál telst sérlega brýnt.

Ekki hefur verið gerð opinber grein fyrir því hvort eða á hvaða forsendum slík undantekning hafi verið talin eiga við í þessu tilviki.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing