Höddi Magg fer á kostum í nýrri auglýsingu Húsasmiðjunnar: „Löngu kominn tími til að sturta Króötunum niður”

Fjölmiðlamaðurinn og fyrrum fótboltakempan Hörður Magnússon er frábær í nýrri auglýsingu Húsasmiðjunnar. Hörður heldur áfram að sýna Íslendingum leiklistar hæfileika sína í auglýsingunni sem má sjá hér að neðan.

Í auglýsingunni fer Hörður yfir HM tilboð Húsasmiðjunnar og talar um hvernig Íslendingar geta stöðvað andstæðinga sína á mótinu. Skemmtilegt orðagrín og frábær leikframmistaða Harðar stela senunni.

Sjá einnig: Ný auglýsing Pepsi-markanna eftir breskri fyrirmynd: Hvor er betri, Höddi Magg eða David Mitchell?

Hörður talar meðal annars um að það þurfi að bora stór göt í vörn Nígeríu, að Argentínumenn muni mála sig út í horn og að lokum sturtar hann Króötum niður í klósettið.

Leiklistarhæfileikar Harðar hafa vakið athygli Íslendinga undanfarið en hann fór einnig á kostum í auglýsingu fyrir þátt Pepsi-markanna í vor ásamt því að hafa áður leikið í þáttum á borð við Steypustöðina.

Auglýsing

læk

Instagram