Japanir þrifu búningsherbergið sitt eftir að hafa dottið úr keppni á HM í gær

Japan féll úr leik í 16 liða úrslitum á HM í gær eftir grátlegt tap gegn Belgíu, þar sem Belgar tryggðu sér 3-2 sigur með marki á lokamínútu leiksins. Þrátt fyrir að hafa verið svekktir í leikslok tóku leikmenn sig til og þrifu búningsklefann áður en þeir fóru heim. 

Íþróttafréttamaðurinn Tancredi Palmeri birti mynd af búningsherberginu á Twitter eftir leikinn í gær.

Búningsherbergið var tandurhreint og miði á borðinu sem stóð á „Spasibo“ eða „Takk“ þar sem Japanir þökkuðu fyrir sig.

Leikmenn voru ekki þeir einu sem vöktu athygli en stuðningsmenn liðsins tóku einnig til í áhorfendastúkunum eftir leikinn

 

Auglýsing

læk

Instagram