Kaupa fjögur skip fyrir Fast 8 og sprengja eitt þeirra, tökur fara líka fram á Norðurlandi

Framleiðslufyrirtæki kvikmyndarinnar Fast 8 vinnur nú að því að kaupa fjögur skip á Íslandi, samkvæmt heimildum Nútímans. Sömu heimildir herma að til standi að sprengja eitt þeirra.

Fast 8, áttunda myndin í Fast and the Furious myndaflokknum, verður að hluta til tekin upp hér á landi. Fast and the Furious myndirnar njóta gríðarlegra vinsælda. Síðasta myndin í flokknum, Furious 7, er til að mynda sjötta tekjuhæsta kvikmynd allra tíma.

Vísir greindi frá því í dag að tökur færu fram á Akranesi en áætlað er að þær hefjist 4. apríl. Heimildir Nútímans herma að tökur fari einnig fram á norðurlandi og að búið sé að bóka hótel við Mývatn í þrjár vikur.

Á meðal leikara sem sem fara með hlutverk í myndinni eru Jason Statham, Dwayne Johnson, Michelle Rodriguez og auðvitað Vin Diesel, sem er einnig einn af framleiðendum.

80 bílar auka tækja og annars búnaðar verða flutt til landsins í tengslum við tökur kvikmyndarinnar Fast 8 á Akranesi í vor. Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.

Skessuhorn greinir frá því að undirbúningur þar hefjist í mars og taki tvær til þrjár vikur. Áætlað er að tökur hefjist 4. apríl. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að mikil umsvif fylgi verkefninu.

Það er mjög ánægjulegt að fyrirtækið Truenorth hefur sett sér það markmið að eiga sem mest viðskipti við heimafólk þegar ráðist er í svona verkefni. Verkefnið mun þannig hafa áhrif á veitingahús á Akranesi og ýmsa verslun og þjónustu.

Umgjörðin verður Sementsreiturinn og byggingar aflagðrar verksmiðjunnar, bryggjusvæðið við Akraneshöfn og nágrenni Krókalóns, samkvæmt frétt Skessuhorns. Á næstunni er von á leikstjóra myndarinnar til að taka svæðið endanlega út.

Auglýsing

læk

Instagram