Nú getur þú sótt um nafnskírteini sem virkar eins og vegabréf erlendis

Útgáfa á nýjum nafnskírteinum er hafin hjá Þjóðskrá Íslands. Ný útgáfa nafnskírteina hefur verið lengi í undirbúningi, allt frá því að fyrsta verkáætlun var samþykkt árið 2007 og fram til ársins 2023 þegar ný lög um nafnskírteini tóku gildi. Þjóðskrá ber ábyrgð á útgáfu og afhendingu skírteinanna. Nýju nafnskírteinin eru fullgild persónuskilríki og geta allir íslenskir ríkisborgarar óháð aldri sótt um nafnskírteinin og notað þau til auðkenningar.

Eldri nafnskírteini sem voru gefin út fyrir 1. janúar 2013 féllu úr gildi þann 1. desember 2023 með gildissetningu nýrra laga. Eldri nafnskírteini sem gefin hafa verið út eftir þann tíma og fram til 1.mars 2024 falla úr gildi 31. desember 2025.

Svona líta nýju nafnskírteinin út en hægt er að sækja um þau á skrifstofum sýslumanna um allt land.

„Með nýrri útgáfu nafnskírteina er verið að auka öryggi þeirra í samræmi við auknar kröfur sem gerðar eru til persónuskilríkja ásamt því að nafnskírteinin er í handhægri stærð í uppfærðu útliti. Nýju lögin um nafnskírteini byggja á, og innleiða, Evrópusambands reglugerð sem var gagngert sett til að auka öryggi persónuskilríkja og ferðaskilríkja innan Evrópusambandsins/Evrópska efnahagssvæðisins.  Með því að innleiða þessa reglugerð er Þjóðskrá að uppfylla kröfur Evrópusambandsins þar sem nýju nafnskírteinin eru í samræmi við önnur Evrópusambands lönd,“ segir á vef Þjóðskrár Íslands.

Útlit nafnskírteinanna byggir á nýjum staðli frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) og er Ísland fyrsta landið í heiminum sem gefur út skilríki samkvæmt þessum nýja staðli.  Helsta breytingin er að andlitsmynd er mun stærri, sem auðveldar allan samanburð við handhafa kortsins.

Nafnskírteini sem ferðaskilríki

Íslenskum ríkisborgurum stendur nú til boða að sækja um nafnskírteini sem ferðaskilríki. Nafnskírteini sem eru ferðskilríki er hægt að framvísa innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) í stað þess að framvísa vegabréfi. Nafnskírteinin staðfesta handahafa kortsins og ríkisfang. Skírteinin eru með örgjörva líkt og vegabréf og fylgja alþjóðlegum stöðlum og ESB-reglugerð.

Munurinn á nafnskírteinum sem ferðaskilríkjum og vegabréfum, er að vegabréf gilda sem ferðaskilríki til allra landa í heiminum en nafnskírteinin gilda innan landa Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

Nafnskírteini sem ekki eru ferðaskilríki, gilda sem persónuskilríki og staðfesta persónu handhafa. Nafnskírteinin sýna ekki ríkisfang og eru ekki gild sem ferðaskilríki.

Handhægt persónuskilríki fyrir alla hópa

Auknar kröfur eru gerðar í samfélaginu um að einstaklingar auðkenni sig með gildum persónuskilríkjum og því nauðsynlegt að koma til móts við þá hópa sem ekki geta framvísað t.d. ökuskírteini.

Með nýju nafnskírteinunum geta ungmenni og aðrir hópar sannað á sér deili með framvísun þeirra og þá sérstaklega innanlands.

Kortin virka sem ferðaskilríki í öllum þeim löndum sem eru græn á þessu korti.

Auglýsing

læk

Instagram