Rebel Wilson á Íslandi: Fór á snjósleða og borðaði vínarbrauð í skemmtilegu myndbandi

Ástralska leikkonan Rebel Wilson eyddi verslunarmannahelginni á Íslandi og var dugleg að sýna aðdáendum sínum frá ferðinni á Instagram.

Í dag birti hún myndband þar sem hún skemmtir sér vel á snjósleða og borðar vínarbrauð úr íslensku bakaríi.

View this post on Instagram

Snowmobiling awesomeness x

A post shared by Rebel Wilson (@rebelwilson) on

Wilson hefur nýtt helgina vel en hún hefur meðal annars skoðað jökla, farið í þyrluferð og skoðað gullna hringinn. Í gær heimsótti hún íslenskan sveitabæ en var ekki hrifin af lyktinni sem tók á móti henni þar.

„Lyktar þetta svona alltaf?” spurði hún í myndbandi sem hún birti sem sögu á Instagram síðu sinni. Hér að neðan má sjá fleiri færslur sem hún hefur deilt með aðdáendum úr ferð sinni.

View this post on Instagram

Cold as Iceland x

A post shared by Rebel Wilson (@rebelwilson) on

 

Auglýsing

læk

Instagram