Meðvirkni: „Hvað er það eiginlega?“

Anna Sigríður Pálsdóttir ráðgjafi fjallaði um meðvirkni í öðru fræðsluerindi Geðhjálpar í vetur. Meðvirkni er alvarlegt vandamál sem snertir flestalla strengi lífs þeirra sem við hana etja. Hún er falin, sorgleg, öflug, lamandi, eyðandi og vekur upp fjölmargar vondar tilfinningar innra með okkur.

Hugtakið meðvirkni er mikið notað og áhugi fyrir því hefur aldrei verið meiri. Þó svo að margir telji sig vita hverjar birtingamyndir meðvirkni geta verið þá vita fáir hver raunveruleg orsök hennar er og hvað hún hefur mikil áhrif á öll okkar sambönd, samskipti og líðan.

Um fræðsluerindið

Meðvirkni er alvarlegt vandamál sem snertir flestalla strengi lífs þeirra sem við hana etja. Hún er falin, sorgleg, öflug, lamandi, eyðandi og vekur upp fjölmargar vondar tilfinningar innra með okkur. Hugtakið meðvirkni er mikið notað og áhugi fyrir því hefur aldrei verið meiri. Þó svo að margir telji sig vita hverjar birtingamyndir meðvirkni geta verið þá vita fáir hver raunveruleg orsök hennar er og hvað hún hefur mikil áhrif á öll okkar sambönd, samskipti og líðan.

Meðal þeirra tilfinninga, upplifana og erfiðleika sem meðvirkni getur skapað eru skömm, öryggisleysi, undanlátsemi, framtaksleysi, þunglyndi, sektarkennd, samskiptaörðugleikar, vandi í samböndum, ótti við álit annarra, stjórnsemi, fíknir, tómleiki og lágt sjálfsmat svo eitthvað sé nefnt.

 

Auglýsing

læk

Instagram