Nýjar leiðir til þess að hugsa um geðheilbrigðismál

Dagana 27. og 28. apríl nk. bjóða samtök Geðhjálpar ásamt fleirum til samræðna, á fyrirlestra og vinnustofur. Fyrirlesarar eru aðila sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum. Auk þeirra mun fólk með reynslu af tilfinningalegri vanlíðan og/eða fíkn leiða vinnustofur.

Í tilkynningu Geðhjálpar segir:

Ráðstefnugestum verður boðið að kynna sér önnur sjónarmið en þau sem hafa verið ríkjandi í geðheilbrigðismálum á tveggja daga ráðstefnu. Við vonumst til þess að fólk, sem lætur sig geðheilbrigðismál varða, mæti og deili hugmyndum og taki þátt í nýsköpun og framþróun í málaflokknum. Við bjóðum leikmenn jafnt sem fagfólk velkomið.

Þessi dagskrá er samstarfsverkefni Geðhjálpar (Ísland), Bevisst Likepersonsarbeid (Noregur) og Intentional Peer Support (alþjóðleg samtök).

Upplýsingar um viðburðinn

Fimmtudagur 27. apríl: Vinnustofur frá 9:00 til 16:00
Staðsetning: Hilton Reykjavík Nordica
Föstudagur 28. apríl: Ráðstefna frá 9.00 til 16.00

Gestafyrirlesarar: Robert Whittaker, Andrew Scull, James Davies, Chris Hansen og Lisa Archibald
Staðsetning: Hilton Reykjavík Nordica

Verð fyrir báða daga: 27.000 kr. – afsláttur fyrir námsmenn og öryrkja 7.000 kr.
Verð fyrir föstudag: 18.000 kr. – afsláttur fyrir námsmenn og öryrkja 5.000 kr.

Auglýsing

læk

Instagram