Bragðgóð og safarík úrbeinuð kjúklingalæri á grillið

Hráefni:

  • 2 msk paprikukrydd
  • 4 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 4 msk fersk steinselja söxuð niður
  • 2 tsk salt
  • ½ tsk svartur pipar
  • 1/2 dl ólívuolía
  • 800 gr úrbeinuð kjúklingalæri

Aðferð:

1. Setjið papriku, hvítlauksgeira, steinselju, salt, pipar og ólívuolíu í skál. Setjið næst kjúklinginn saman við og blandið öllu mjög vel saman. Setjið filmu yfir skálina og látið þetta standa inni í ísskáp í minnsta kosti 30 mín áður en kjötið er grillað.

2. Grillið kjötið á grillinu þar til þar er eldað í gegn og hefur tekið á sig fallega gylltan lit.

Auglýsing

læk

Instagram