Fullkomið meðlæti: Ofnbakaður ferskur aspas með mozzarella og parmesan

Þá er fallegur laugardagur genginn í garð og það styttist óðum í hátíð ljóss og friðar. Af því tilefni viljum við á Nútímanum bjóða ykkur upp á uppskrift af hinu fullkomna meðlæti en um er að ræða ofnbakaðan ferskan aspas – við elskum aspas! Eigið yndislega helgi og verði ykkur að góðu.


Hráefni:

  • 450 gr ferskur aspas
  • 3 msk ólívuolía
  • 1 1/2 msk hvítlaukur rifinn niður
  • salt & pipar eftir smekk
  • 2 dl rifinn mozzarella
  • 1/2 dl rifinn parmesan

Aðferð:

1. Leggið bökunarpappír á ofnplötu og raðið aspasnum í þéttri röð á plötuna.

2. Hrærið olíu og hvítlauk saman í skál. Hellið blöndunni jafnt yfir aspasinn. Kryddið með salti og pipar. Bakið við 200 gráður í 15 mín eða þar til aspasinn er orðinn aðeins mjúkur.

3. Takið úr ofninum og dreifið báðum ostunum jafn yfir aspasinn. Setjið aftur inn í ofn í 2-3 mín eða þar til osturinn er alveg bráðinn. Stillið þá ofninn á grill í smástund eða þar til osturinn er farinn að gyllast. Berið fram strax.

Auglýsing

læk

Instagram