Orkan stígur skref til að bæta loftlagsmál – Undirritar samstarf við Votlendissjóð

Orkan og Votlendissjóðurinn hafa undirritað þriggja ára samning um kolefnisjöfnun alls reksturs Orkunnar. Undir reksturinn telst allur akstur og flugferðir innan starfseminnar, notkun á vatni, hita og rafmagni og meðhöndlun sorps. Með því tekur Orkan samfélagslega ábyrgð en jafnframt er markvisst unnið að því að minnka kolefnisspor hennar.

Votlendissjóðurinn vinnur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með endurheimt votlendis í samstarfi við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.

Um 66% af losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi stafar frá framræstu votlendi. Undir 20% þessa landsvæðis er í notkun og því má stöðva losun gróðurhúsalofttegunda frá gríðarstóru landsvæði án þess að ganga á hagsmuni nokkurra. Endurheimt votlendis er áhrifarík, einföld og ódýr leið, sem byrjar strax að skila árangri.

Með samningi Votlendissjóðsins og Orkunnar er stigið mikilvægt skref í þessari vegferð. Það er von beggja samningsaðila að sem flestir fylgi í kjölfarið og ljái þessu mikilvæga verkefni aðstoð sína með því að kolefnisjafna sig í gegnum sjóðinn, bjóða fram framræst land til endurheimtar eða einfaldlega með samtali.

Auglýsing

læk

Instagram