Leikskólinn Múlaborg enn í fréttum: „Rottan hún Heiða“ heldur leikskólanum í heljargreipum

Óvenjulegt ástand skapaðist í leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þegar rotta settist að í húsnæðinu og truflaði daglegt starf. Starfsfólk ákvað þó að mæta aðstæðum með húmor og skírði óboðna gestinn Heiðu, en lesendur geta giskað á hvort það nafn sé tilviljun.

Samkvæmt upplýsingum frá leikskólanum urðu starfsmenn varir við ummerki sem bentu til meindýrs í húsinu. Viðbrögð voru hröð, sérfræðingar kallaðir til og hafist handa við að loka mögulegum leiðum sem rottan gæti nýtt til að komast inn.

Auglýsing

Eins og margir vita kom upp alvarlegt mál síðasta haust þar sem starfsmaður er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn barni á leikskólanum.

Eldhúsið lokað og pizzan bjargaði deginum

Vegna aðstæðna var ekki hægt að elda mat í leikskólanum um stundarsakir. Í staðinn var gripið til skyndilausna og pizza pöntuð fyrir börnin, sem vakti mikla lukku.

„Fluggáfað kvikindi“ sem lætur ekki ná sér

Í tilkynningu til foreldra var Heiðu lýst sem „fluggáfuðu kvikindi“ sem lætur ekki auðveldlega ná sér. Þrátt fyrir aðgerðir hefur hún enn ekki verið handsömuð þegar fréttin er skrifuð, en unnið er markvisst að því að uppræta vandann.

Á meðan hefur verið farið yfir allt húsnæðið til að tryggja að engin önnur dýr hafi komist inn og að öryggi barna sé í fyrirrúmi.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing