Hlédís Maren Guðmundsdóttir, sem skipar fjórða sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík, gagnrýnir húsnæðisstefnu Samfylkingarinnar og segir hana ekki mistök heldur meðvituð ákvörðun, ætlað að draga úr framboði á húsnæði.
Hlédís vísar í umræðu á pallborði Leigjendasamtakanna þar sem hún segist hafa fengið skyndilega vitrun. Þar hafi komið fram að Samfylkingin, ein flokka, telji ekki að mistök hafi verið gerð í uppbyggingu húsnæðis í borginni undanfarin ár.

Samkvæmt Hlédísi hafi borgarstjórinn ,Heiða Björg Hilmisdóttir, sagt að borginni hafi áður verið stýrt af hægri öflum þar sem markaðurinn fékk að ráða ferðinni og mikið hafi verið byggt. Á síðustu árum hafi hins vegar verið reynt að snúa þeirri þróun við með aukinni áherslu á óhagnaðardrifið húsnæði.
Gagnrýnir áherslu á félagslegt húsnæði
Hlédís gagnrýnir þessa nálgun og segir hana ekki leysa undirliggjandi vanda. Hún bendir á að samkvæmt markmiðum Samfylkingarinnar eigi 25-35 prósent húsnæðis að vera félagslegt eða óhagnaðardrifið.
Að hennar mati séu slíkar lausnir einungis í boði fyrir hluta markaðarins en séu fjármagnaðar af öðrum, og geri auk þess lítið til að takast á við skort á framboði. Hún segir að ef ekki sé ráðist í að stórauka framboð muni húsnæðismarkaðurinn áfram vera óhagkvæmur fyrir almenning.
Telur þróunina veikja séreignarstefnu
Hlédís heldur því fram að afleiðingin af stefnu borgarinnar sé húsnæðisskortur, veikara vægi séreignarstefnu og aukin eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði.
Hún bendir jafnframt á hækkun fasteignaverðs á síðustu árum og segir þá sem keyptu fyrir um fimm árum hafa verið heppna. Að hennar mati standi ungt fólk nú verr að vígi á markaðnum og neyðist frekar til að leigja af borginni.
„Svo megum við sannfæra sjálf okkur um að það hafi einmitt verið það sem við vildum allan tímann,“ segir Hlédís að lokum.
Ég var slegin af skyndilegri vitrun á pallborði Leigjendasamtakanna í gær: Samfylking hefur ekki gert nein mistök í borginni. Þetta var alltaf planið.
Aðspurð um jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar í borginni sagði Heiða Björg að Reykjavíkurborg hafi lengi vel verið stýrt… pic.twitter.com/hT5fRVAmCI
— Hlédís Maren Guðmundsdóttir (@HledisMaren) May 3, 2026