Annie Mist og Björgvin fimm milljónum ríkari eftir sigur í Dubai

Annie Mist Þórisdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson báru sigur úr bítum á hinu geysisterka, Dubai Fitness Championship sem lauk í gær. Verðlaunaféið á mótinu er ekki af verri endanum en þau fá bæði 50 þúsund dollara, rúmlega fimm milljónir. Vísir.is greinir frá þessu.

Sjá einnig: Myndband: Annie Mist lyfti 1.272 kílóum á einni mínútu og bætti heimsmet

Þetta er annað árið í röð sem íslensk kona vinnur þetta sterka mót en Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir vann mótið í fyrra.

Þau Annie og Björgvin voru ekki einu íslensku keppendur mótsins en Þuríður Helgadóttir og Eik Gylfadóttir höfnuðu í 14. og 15. sæti. Þá endaði Björk Óðinsdóttir í 21. sæti. Þær fá allar þúsund dollara í sinn hlut.

Auglýsing

læk

Instagram