Kylie Jenner tísti um Snapchat og markaðsvirðið hrundi um tugi milljarða

Kylie Jenner er augljóslega ein valdamesta kona heims. Eitt stutt tíst frá henni getur haft gríðarleg áhrif og það sannaðist í gær þegar hún tísti um Snapchat og nýju uppfærsluna á appinu.

Kylie velti fyrri sér hvort einhver opni enn þá Snapchat en ný uppfærsla á appinu þykir afar umdeild. Tístið náði mikilli útbreiðslu eins og allt sem hún sendir frá sér á samfélagsmiðlum en áhrifin voru mest á Wall Street.

Í kjölfarið á tístinu til 24 milljón fylgjenda sinna hrundi markaðsvirði Snapchat um 7,2 prósent. Þar með strokaðist út markaðsvirði upp á 1,3 milljarð dali — um 131 milljarðar íslenskra króna.

Hvorki meira né minna!

Auglýsing

læk

Instagram