Tvær stelpur í sigurliði Gettu Betur í fyrsta sinn: „Helvítis pakkið sem var á móti kynjakvótanum má fokka sér!“

Kvennaskólinn í Reykjavík vann Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna í kvöld eftir sigur á Menntaskólanum í Reykjavík með einu stigi. Þetta er í fyrsta skipti í sögu keppninnar sem tvær stelpur eru í sigurliði í keppninni.

Fjóla Ósk Guðmundsdóttir er ein af þeim en þetta er í annað skipti sem hún stendur uppi sem sigurvegari í keppninni. Hún var ánægð með sigurinn.

„Þegar ég var yngri hélt ég að stelpur gætu ekki tekið þátt í Gettu betur, nú hef ég sigrað keppnina tvisvar sinnum,“ skrifaði hún á Twitter í kvöld.

Sigurlið Kvennaskólans, var ásamt Fjólu skipað þeim Hlyni Ólasyni og Berglindi Bjarnadóttur en þetta er þriðji sigur Kvennaskólans í úrslitum Gettu Betur.

Steinþór Helgi Arnsteinsson fyrrum spurningahöfundur og dómari í Gettu betur var ánægður með sigurliðið og lét þá sem voru á móti kynjakvóta á sínum tíma heyra það.

Auglýsing

læk

Instagram