Aktivistar gegn ofbeldi trylltust yfir málshætti

Facebook hópurinn Báráttuhópur gegn Ofbeldismenningu logaði glatt á páskasunnudag þegar ein kona birti þar málshátt sem hún hafði fengið en hann hljómaði svo: „Tvennt er kyn af manni hverjum.“

Svo virðist sem þessi málsháttur hafi farið rangt ofan í margar en allir stjórnendur síðunnar fordæmdu málsháttinn og töldu hann merki um úreltan hugsunarhátt og óviðeigandi í nútíma samfélagi.

Auglýsing

Sóley Tómasdóttir, fjölbreytileikafræðingur, setti einnig inn sitt álit á málshættinum, en það var stutt og einfalt ‚oj‘.

Fjölmargir fleiri fylgdu á eftir en Bjarki nokkur setur inn merkingu málsháttarins, sem hann segir vera þá að verið sé að vísa í að baki öllum séu tvær ættir. Önnur merking sem bent er á, er sögð vera að hægt sé að vera með fleiri en eina skapgerð.  Eftir það segir ein í ummælum að ekki eigi að vera með málshætti í umferð um jafn viðkvæm málefni sem geti misskilist svo auðveldlega.

Uppfærsla: Færslunni hefur verið eytt síðan fréttin var skrifuð.

Skjáskot af færslunni
Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing