(Landlæknisembættið, ráðuneytið, barnaspítalinn og allar viðkomandi stofnanir)
Áskorun um tafarlaust, algjört bann við svokölluðu „kynstaðfestandi ferli“ á börnum og ungmennum – í ljósi nýjustu finnsku rannsóknarinnar sem sýnir að meðferðirnar auka líkurnar á geðrænum vanda og að áhættan er mun meiri en meintur ávinningur.
Virðulegu þingmenn og stjórnendur,
Ég skrifa ykkur í dag, frekar djúpt hugsi og þjakaður sárindum, reiði og vonbrigðum.
Í dag er World Health Day á vettvangi Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar – World Health Organisation.
Slagorð ársins er “Together for health. Stand with science”. (Saman fyrir heilsu. Stöndum með vísindunum)
Það fer um minn kaldhæðnislegur hrollur.
Nýlega birtist í *Acta Paediatrica* (4. apríl 2026) stórfelld finnsk rannsókn sem byggir á öllum 2.083 einstaklingum undir 23 ára aldri sem leituðu til sérhæfðra transteyma í Finnlandi á árunum 1996–2019.
Niðurstöðurnar eru hreint vísindalegt hneyksli og ættu að binda endi á það barnaofbeldi sem gengur undir nafninu „kynstaðfestandi ferli“.
Rannsóknin sýnir skýrt:
– Tíðni geðraskana meðal þessara ungmenna er þrisvar til fimm sinnum hærra en hjá almennum þjóðfélagsþegnum – bæði fyrir og eftir að þeir fengu þjónustu transteyma.
– Eftir 2010 þegar sprenging í tilvísunum átti sér stað jókst þörfin enn frekar.
Þeir sem fengu fulla kynbreytingarmeðferð (hormóna- og/eða skurðaðgerðir): tíðni geðraskana stigmagnaðist frá 9,8% í 60,7% drengja hjá þeim sem fengu kvengervismeðferð og úr 21,6% í 54,5% hjá stúlkum sem fengu karlgervismeðferð.
– Niðurstaða höfunda er skýr og óhrekjandi: „Psychiatric needs do not subside after medical gender reassignment.“ Þvert á móti versnar ástandið. Geðræna vandan þarf að greina og meðhöndla FYRST.
Finnland og fleiri siðmenntuð ríki sem við viljum bera okkur saman við hafa dregið úr þessum meðferðum og jafnvel hætt þeim alfarið. Þar hafa vísindin fengið að ráða för og heilsa barna sett ofar hugmyndafræði jaðarhóps í fræðasamfélaginu; jaðarhóps sem ber með sér öll einkenni sértrúarsafnaðar.
En hvað gerum við á Íslandi? Við leyfum enn börnum og unglingum – sem eru þegar með alvarlegar geðraskanir – að fara í óafturkræfar hormónameðferðir, fá kynþroskabælandi lyf og jafnvel skurðaðgerðir á grundvelli hugmyndafræði sem hefur enga vísindalega stoð. Við leyfum hagsmunasamtökum kynjafræðinga og transaðgerðarsinna að ráða för í geðheilbrigðisþjónustu barna í stað gagnreyndra vísinda. Þetta er ekki „umhyggja“. Þetta er læknisfræðilegt og siðferðilegt ábyrgðarleysi. Og ef þetta heldur svona áfram, þá er þetta ekki aðeins glæpsamleg vanræksla að mínu mati – heldur tilraunaofbeldi á börnum af yfirlögðu ráði.
Algjört brot á öllum þeim mannréttindasáttmálum og siðferðislegum viðmiðum sem við höfum undirgengist að virða.
Ég krefst þess hér með, af fullum krafti:
1. Fellið lög um kynrænt sjálfræði tafarlaust úr gildi. Málið þurfti mun betri aðkomu almennings og lögin eru nú misnotuð í þeim tilgangi að fremja læknisfræðilegar tilraunir á börnum og viðkvæmum hópum fullorðinna.
2. Blátt bann við allar kynbreytingarmeðferðir (puberty blockers, krosskynjahormón og skurðaðgerðir) á börnum og ungmennum undir 18 ára aldri. Engar undanþágur. Engar „matssviðs“-leiðir. Engar „sjálfskilgreiningar“.
3. Ströng og tafarlaus styrking geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga sem byggir eingöngu á gagnreyndum vísindum – ekki á bábiljum kynjafræðinga, queer theory eða hagsmunasamtaka þeirra. Allar tilvísanir til kynjaþjónustu skulu fyrst fara í alhliða geðrannsókn þar sem undirliggjandi þunglyndi, kvíði, áfall, ASD, ADHD og aðrar raskanir eru meðhöndlaðar áður en nokkur tal um svokallaða „kynvitund“ (sem nota bene er trúarlegs eðlis og á sér enga vísindalega stoð) er leyft að ráða för.
4. Þingið og heilbrigðisyfirvöld taki ábyrgð og stöðvi þessa tilraunastarfsemi strax. Börn eru ekki tilraunadýr fyrir hugmyndafræði jaðarhóps í fræðasamfélaginu sem nú er að hrynja í raunveruleikanum eins og finnska rannsóknin sýnir.
Áframhaldandi aðgerðarleysi ykkar við þessu er ekkert annað en glæpsamleg vanræksla sem mun kosta börn og unglinga varanlegan skaða, ófrjósemi, beinþynningu, krabbameinshættu og sjálfsvígshættu. Þið getið ekki lengur falið ykkur á bak við „þekkingarleysi“ eða „umhyggju“. Þetta er glæpur gegn næstu kynslóð. Glæpur gegn mannkyni.
Ég hef barist opinberlega gegn þessari hugmyndafræði og greitt dýru verði fyrir það. Það vita sum ykkar sem sitjið á þingi. Sum ykkar vilja alveg tala við mig, en vilja alls ekki sjást með mér. Sum ykkur hafa sagt mig hættulegan. En það er vegna þess að þeir sem hafa brotið af sér finnst óþægilegt þegar andardráttur rannsakandans er orðin merkjanlegur.
Þið vitið hver þið eruð.
En þetta snýst ekki um mig. Og ekki um ykkur heldur!
Þetta snýst um börnin sem eru að verða fyrir varanlegum skaða á meðan þið hafið það eitt að halda í pólitískan kapítal.
Þið eruð öll atvinnustjórnmálamenn í eiginhagsmunagæslu.
Hver og einn einasti ykkar.
Þið hafið virkilega brugðist og sagan mun dæma ykkur.
Hérna er vendipunkturinn. Þetta er útrétt hönd. Síðasti séns.
Tíminn er liðinn. Vísindin eru skýr. Þið hafið ekki lengur neina afsökun.
Gerið það rétta. Núna.
Með fyllstu alvöru og reiði,
Eldur Smári Kristinsson
Rithöfundur og baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra, kvenna og barna
Alþjóðafulltrúi LGB Samtakanna og stjórnarmaður í LGB International
(Bréf þetta er sent með tölvupósti til allra þingmanna og helstu stjórnenda heilbrigðisyfirvalda og verður einnig birt opinberlega.)*