Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti heldur áfram að fara sínar eigin slóðir og gefur út nýtt lag, Against the Current, á miðvikudaginn í þessari viku. Lagið er forsmekkur að væntanlegri plötu hans, Julia, sem kemur út 13. febrúar hjá One Little Independent Records.
Julia markar tímamót á ferli Ásgeirs, þar sem hann semu í fyrsta sinn alla texta sjálfur, án þýðinga eða ljóða föður síns. Útkoman er persónuleg, nostalgísk og einlæg plata sem horfir bæði til fortíðar og framtíðar.
Ásgeir er einn af farsælustu tónlistamönnum Íslands. Frumraun hans, Dýrð í dauðaþögn, varð söluhæsta frumraun í íslenskri tónlistarsögu og leiddi til útgáfu enskrar útgáfu plötunnar, In the Silence, árið 2014. Hann hélt áfram að móta og dýpka hljóm sinn með plötunum Afterglow (2017), Bury the Moon (2020) og Time on My Hands(2022), sem hlutu lof gagnrýnenda og fengu mikla spilun víðs vegar um heim, þar á meðal hjá The Independent, MOJO, NME, The Line of Best Fit, Clash Magazine, BBC 6 Music og auðvitað hinni íslensku X-977.
Með útgáfu lagsins er Ásgeir jafnframt að hita upp fyrir tónleikaferðalag um Bretland, Evrópu og Bandaríkin í vor. Ef Against the Current er vísbending um það sem koma skal, þá er ljóst að Ásgeir er hvergi nærri hættur að koma á óvart.
Við hér á Nútímanum erum að missa okkur af spennu yfir nýja efninu og mælum eindregið með hlustun í spilaranum hér að neðan.