Trump fær óvænt skilaboð frá Íslandi sem fer eins og eldur í sinu út um allan heim

Greipur Hjaltason er enn á ný kominn með stutt grínmyndskeið sem slær í gegn á netinu – og að þessu sinni eru „skilaboðin“ stíluð á Donald J. Trump, forseta Bandaríkjanna.

Tæplega tvær milljónir manna úti um allan heim hafa horft á myndskeiðið og þá hafa yfir 40 þúsund manns smellt „læk“ á það.

Auglýsing

Í myndskeiðinu talar Greipur beint í myndavélina, með fullkomlega alvarlegum tón, og það er einmitt það sem gerir brandarann svo fyndinn. Hann fer yfir ruglinginn sem oft skapast á milli Íslands og Grænlands og byggir grínið upp á þeirri hugmynd að Víkingarnir hafi valið nöfnin viljandi til að blekkja fólk.

Ísland og Grænland – gamalt rugl, nýtt grín

Í myndbandinu, sem birt er á facebook síðu Guide to Iceland, rifjar Greipur upp söguna um að Grænland hafi fengið „betra nafnið“ til að lokka fólk til búsetu, á meðan Ísland fékk hitt nafnið til að fæla aðra frá.

Svo bætir hann við sínu eigin ívafi og dregur upp mynd sem er jafn fáránleg og hún er fyndin – eins og honum einum er lagið.

„Við nefndum það Ísland svo íbúar í Mexíkó myndu ekki synda yfir“

Ein línan sem virðist slá sérstaklega í gegn er þegar Greipur segir, með steindauðu pokerface, að Ísland hafi verið nefnt Ísland til að halda íbúum í Mexíkó frá því að synda yfir.

Línan kemur óvænt, er sögð af fullri alvöru og hittir þannig beint í mark hjá áhorfendum.

Disney World, áfengisbúðir og ísbirnir

Greipur stoppar ekki þar. Hann skýtur líka inn samanburði við biðraðir í Disney World og segir að ef fólki finnist þær langar þá eigi það bara eftir að sjá biðina í áfengisbúð á Grænlandi.

Á sama tíma gerir hann grín að því að þar sé ekki mikið að finna annað en „ís og ísbirni“, og heldur þessari hálf-alvarlegu framsetningu alla leið.

Appelsínuguli brandarinn sem klárar þetta

Í lok myndbandsins skýtur Greipur svo inn línu um brúnkustofur og að Íslendingar vilji „vera eins og þú“, áður en hann stingur endanlega í gegn með einu orði sem flestir skilja strax hvert á að vísa:

Orange.

Klippa sem fólk er að deila áfram

Myndbandið er af þeirri gerð sem fólk horfir á, hlær strax og sendir áfram. Þetta er stutt, beitt og sett fram þannig að punchline-in lenda hratt – sem er nákvæmlega það sem virkar best í reels og stuttum klippum.

Hver er Greipur?

Greipur Hjaltason er íslenskur grínisti og uppistandari sem hefur á síðustu árum vakið mikla athygli með stuttum grínmyndböndum á samfélagsmiðlum, þar sem hann blandar saman kaldhæðni, leiknum frásagnartóni og mjög hnitmiðuðum punchline-um.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing