Auglýsing

Eldgos hafið á Reykjanesskaga

Eldgos er hafið á Reykjanesskaga. Upptökin eru talsvert frá Grindavík, yfir kvikuganginum í Sundhnúksgígaröðinni.

Uppfært 12:50 – Eldgosið við Hagafell hefur haldið sama styrk síðustu klukkustundina eða svo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Jarðskjálftamælingar sýna að í upphafi umbrotanna leitaði kvikan til suðvesturs frá svæðinu norðan Sundhnúks og náði suður fyrir Hagafell.

Síðustu klukkutímana hefur jarðskjálftavirknin hins vegar verið stöðug sem bendir til þess að framrás kvikugangsins hafi stöðvast, en að hann hafi náð að bæjarmörkum Grindavíkur og jafnvel undir bæinn.

Nú rétt í þessu opnaðist ný gossprunga sunnan við fyrstu sprunguna frá því í morgun. Nýja sprungan er rétt utan bæjarmarkanna.

Aflögunarmælingar benda eindregið til þess að sprungur innan bæjarmarkanna í Grindavík hafi gliðnað af völdum umbrotanna í morgun. Því má reikna með að fleiri sprungur hafi opnast og ef til vill nýjar myndast.

Kort sem sýnir staðsetning nýju sprungunnar sem opnaðist við bæjarmörkin. Sprungurnar tvær er merktar með rauðum strikum.

 

Fréttin verður uppfærð.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing