Enn ein konan hefur stigið fram í umræðunni um áhrifavaldinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina. Birta Blanco segist einnig hafa orðið fyrir ofbeldi af hans hendi.
Birta greinir frá þessu í ummælum undir frétt á Vísi þar sem fjallað er um málið sem hefur vakið mikla athygli undanfarna daga.
„Við erum margar sem hafa lent í honum sem fólk veit ekki einusinni af… Þessar fréttir eru verulega triggerandi og erum við ALLAR í áfallastreitu með hverri einustu frétt. Hugur minn er hjá okkur öllum og hvað mest nýja fórnalambinu,“ skrifar Birta í athugasemd sinni.

Fleiri konur stíga fram
Umræðan um málið hófst eftir að einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir steig fram fyrr í dag og greindi frá því að hún segist hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi Kristjáns.
Í kjölfarið birti söngkonan Svala Björgvins einnig skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hún lýsti því yfir að hún væri sjálf þolandi ofbeldis af hendi sama manns.
Höfðu áður verið tengd opinberlega
Birta og Kristján höfðu áður verið tengd við hvort annað opinberlega. Árið 2022 var meðal annars fjallað um það í DV þegar Kristján birti myndband frá heimili Birtu þar sem hún hafði boðið honum í mat.
Birta sagði þá í samtali við DV að þau væru einungis vinir. Athygli vakti á þeim tíma þegar Kristján sýndi frá heimsókninni á samfélagsmiðlum og þakkaði henni fyrir matinn.
Nú hefur Birta hins vegar stigið fram í umræðunni og segist sjálf hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi hans.