Segir Bandaríkin vera Rússlandsmegin í afstöðu sinni gagnvart stríðinu

Baldur Þórhallsson, sem er prófessor í stjórnmálafræði, mætti í viðtal hjá RÚV í dag og ræddi um stöðuna sem er í gangi í Bandaríkjunum um þessar mundir.

Baldur sagði að augljóst smjaður forsætisráðherra Bretlands og Frakklands fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta engu hafa skilað miðað við samtal þess síðastnefnda við Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta í Hvíta húsinu í gær. Hann segir einnig að Bandaríkin séu að staðsetja sig með Rússlandi í afstöðu sinni gagnvart stríðinu og friðarviðræðum.

Auglýsing

Hann segir að það valdi honum vissulega áhyggjum að Bandaríkin hafi ekki lýst því yfir að þau myndu styðja evrópsku Atlantshafsbandalagsríkin komi til innrásar í ríkin, en segist þó efast ekki um að Bandaríkin standi við varnarsamkomulag sitt við Ísland.

Baldur segir Trump vera að reyna að þvinga Zelensky að samningaborðinu.

Viðtalið í heild er inni á RÚV

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing