Ari Eldjárn kemur fram í vinsælum breskum grínþætti

Ari Eldjárn verður gestur í breska þættinum Mock the Week, sem snýr aftur á dagskrá á bresku sjónvarpsstöðinni BBC 2 sjöunda júní næstkomandi. Horfðu á brot af því besta úr síðustu þáttaröð hér fyrir neðan.

Og Ari er spenntur

Í Mock the Week fara grínistar yfir fréttir vikunnar á gamansaman hátt en þátturinn fór fyrst í loftið ári 2005. Margir frábærir grínistar á borð við John Oliver, David Mitchell og Katherine Ryan hafa komið fram í þættinum og Ari bætist þar með í hóp með þeim.

Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta úr 16. þáttaröð Mock the Week

https://www.youtube.com/watch?v=mqZaivTpnMg

Sjá einnig: Ari Eldjárn er líka ógeðslega fyndinn á ensku

Auglýsing

læk

Instagram