Bað bestu fótboltakonu í heimi um að twerka þegar hún tók við verðlaunum: „Ekki vera f****** hálfviti“

Ada Hegerberg varð í gærkvöldi fyrsta konan sem hlýtur Gullknöttinn eða Ballon D’Or verðlaunin í fótbolta. Ada hlaut verðlaunin í kvennaflokki en þegar hún tók við verðlaununum bað kynnir kvöldsins hana um að twerka.

Hegerberg svaraði fljótt neitandi og hafði ekki húmor fyrir spurningunni sem plötusnúðurinn Martin Solveg lagði fram. Atvikið hefur vakið mikla athygli og reiði en Solveg hefur beðist afsökunar á spurningunni.

„Allir sem að hafa unnið með mér vita hversu mikla virðingu ég ber fyrir konum,“ sagði hann í morgun.

Margir hafa tjáð sig um atvikið á samfélagsmiðlum og þar á meðal eru nokkrar íslenskar knattspyrnukonur sem segja atvikið skammarlegt.

Landsliðskonan Sif Atladóttir er þeirra á meðal en hún tjáði sig um atvikið á Twitter í gær og sagðist ekki geta meir.

„Alltaf þegar við tökum skref áfram förum við tíu til baka. Berðu virðingu fyrir manneskjunni og vinnu hennar og ekki vera f****** hálfviti,“ skrifar Sif.

Auglýsing

læk

Instagram