Birkir Már gaf eiginkonu sinni sokka með mynd af sjálfum sér

Birkir Már Sævarsson er einn ástsælasti knattspyrnumaður í sögu Íslands og þykir góð fyrirmynd innan vallar sem utan. Stefanía Sigurðardóttir, eiginkona Birkis, er ekki alveg á sama máli eftir gjöf sem hann gaf henni en í færslu á Twitter bað hún þá sem telja Birki vera hógvært prúðmenni vinsamlegast að ranka við sér.

Sjá einnig: Birkir Már fékk frí í vinnunni til þess að keppa á HM

Birkir gaf Stefaníu, eða Stebbu, sokka með mynd af andliti sínu á þeim. Gjöf sem flestir Íslendingar yrðu sennilega himinlifandi með.

Sjáðu myndina

Auglýsing

læk

Instagram