Emmsjé Gauti kominn með risaljón á bringuna til heiðurs dóttur sinni: „Ég þarf að klára líkamann“

Rapparinn Emmsjé Gauti fékk sér enn eitt húðflúrið á dögunum. Kappinn er kominn með risavaxið ljón á bringuna en það er engin tilviljun, stjörnumerki dóttur hans er nefnilega ljónið.

Gauti segist í samtali við Nútímann lengi hafa velt fyrir sér hverskonar flúr hann átti að fá sér á bringuna. „Ég hafði alltaf hugsað mér symmetríska mynd og í stærra lagi,“ segir hann í samtali við Nútímann.

Ég er náttúrulega löngu kominn með það mikið af bulli hér og þar á líkamann að ég get ekki hætt núna. Ég þarf að klára líkamann og gera heilsteypt verk úr þessu skinni.

Gauti varð pabbi í fyrra en dóttir hans fæddist í lok júlí og er ljón. „Ég var ekki búinn að fá mér flúr tengt henni svo ég ákvað að skella mér á þetta,“ segir hann. „Það er ágætis afsökun til þess að setja risa ljón yfir alla bringuna á sér.“

Hann tekur fram að flúrið er óklárað en það á eftir að skyggja það og lita. Bardagakappinn Conor McGregor er með górillu á sama stað en Gauti óttast ekki brandara um að húðflúrið hans sé svipað. „Ég tek öllum Conor McGregor djókum opnum örmum,“ segir hann léttur.

Auglýsing

læk

Instagram