today-is-a-good-day

Fagnaði marki í MLS deildinni í fótbolta með því að mótmæla byssulöggjöf Bandaríkjanna

Alejandro Bedoya, fyrirliði Philadelphia Union, í MLS-deild Bandaríkjanna í fótbolta fagnaði á eftirminnilegan hátt þegar hann skoraði mark í 5-1 sigri liðsins á DC United um helgina. Bedoya hljóp að míkrafón sem var við völlinn og sendi skýr skilaboð vegna byssulöggjafar Bandaríkjanna.

Bedoya biðlaði til þeirra sem gætu að gera eitthvað til að bregðast við byssuofbeldi í landinu. „Löggjafarþing, gerið eitthvað núna. Bindið enda á byssuofbeldið,“ sagði hann en myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.

Tvær skotárásir áttu sér stað í Bandaríkjunum um helgina og alls voru 29 einstaklingar skotnir til bana. Önnur árásin átti sér stað í Texas og hin í Ohio. Umræður um byssulöggjöf Bandaríkjanna hafa farið á fullt í kjölfarið.

Auglýsing

læk

Instagram