FIFA selur VIP miða á leik Íslands og Argentínu á 265 þúsund krónur

FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið hefur sett í sölu miða á leik Íslands og Argentínu á HM. Óhætt er að segja að miðarnir séu ekki á færi allra en um svokallaða VIP miða er að ræða sem kosta tæplega 265 þúsund krónur stykkið. Hægt er að nálgast miðana hér.

Ekki er hægt að kaupa staka VIP miða á leikinn en aðeins er boðið upp á að kaupa fjóra miða í einu. Slíkur pakki kostar rúmlega eina milljón króna. Mikil eftirspurn er eftir miðum á leikinn sem fer fram í Moskvu 16. júní. 

Þetta virðist þó ekki vera eini möguleiki Íslendinga til að fá miða en Vísir.is greindi frá því í gær að ferðaskrifstofan Tripical hefði orðið sér úti um 100 miða á leikinn. Þeir miðar kosta 79 þúsund krónur stykkið.

Auglýsing

læk

Instagram