Flugvél snerist í lendingu og stöðvaðist á hvolfi

Flugvél sem kom til lendingar á Haukadalsflugvelli á Rangárvöllum í gær lenti í óhappi. Einshreyfils flugvélin snerist í lendingunni og stöðvaðist á hvolfi á jörðinni. Flugmanninum varð ekki meint af en hann var einn í vélinni.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að flugsviði rannsóknarnefndar samgönguslysa hafi verið gert viðvart og málið sé nú á þeirra könnu.

 

Auglýsing

læk

Instagram