Fyrstu ljósmyndirnar úr endurgerð Hrúta

Í síðasta mánuði hófust tökur á ástralskri endurgerð af íslensku kvikmyndinni Hrútar, eftir Grím Hákonarson. Ástralska framleiðslufyrirtækið WBMC sér um endurgerðina.

Hrútar vann meðal annars Un Certain Regard verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2015 og var framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna árið 2016.

Myndin fjallar um tvo sauðfjárbændur á sjötugsaldri, bræðurna Gumma og Kidda, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi. Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson léku aðalhlutverkin.

Fjárstofn þeirra bræðra þykir einn sá besti á landinu og eru þeir margverðlaunaðir fyrir hrútana sína. Þrátt fyrir að deila sama landi og lífsviðurværi þá hafa bræðurnir ekki talast við í fjóra áratugi.

Nýsjálenski leikarinn Sam Neil sem er þekktastur fyrir leik sinn í Jurassic Park myndunum fer með aðalhlutverk í endurgerðinni ásamt Michael Caton. Jeremy Sims sér um leikstjórn. Fyrsta ljós­mynd­in er nú kom­in af leik­ur­un­um Sam Neill og Michael Cat­on í hlut­verk­um sín­um í kvik­mynd­inni.

Auglýsing

læk

Instagram