Hættir í stjórn SÍF vegna brottrekstrar Davíðs: „Skrípaleikur meirihlutans líkir við pólitískri valdabaráttu í House Of Cards”

Einar Freyr Bergsson, gjaldkeri Sambands íslenskra framhaldsskólanema, hefur sagt sig úr stjórn sambandsins. Ástæðan er brottrekstur Davíðs Snæs Jónssonar, fyrrverandi formanns sambandsins, á dögunum. Einar Freyr var sá eini í stjórninni sem skrifaði ekki undir brottvísun Davíðs á sínum tíma.

Einar sendi frá sér fréttatilkynningu um afsögn sína í dag og þar lýsti hann einnig yfir vantrausti á meirihlutann fyrir að virða ekki lög og reglur sambandsins og kallar eftir afsökunarbeiðni.

„Skrípaleikur meirihlutans líkir við pólitískri valdabaráttu í sjónvarpsþættinum House Of Cards, þar sem einstaklingar nýta lagaglufur til þess að koma sjálfum sér í valdastöður,“ segir í tilkynningu Einars.

Davíð Snæ var vikið úr starfi eftir umdeilda blaðagrein sem birtist í Fréttablaðinu. Þar skrifaði hann um kynjafræði sem skyldufag í framhaldsskólum og líkti henni við „marxísk fræði“.

Í fréttatilkynningu SÍF var Davíð sagður hafa látið birta greinina þvert á ákvörðun framkvæmdastjórnar. Þá hafi það einnig  verið brottrekstrarsök að beita sér gegn stefnu sambandsins með þeim hætti sem Davíð gerði.

Sjá einnig: Örskýring: Formaður SÍF rekinn eftir umdeilda blaðagrein

Einar segir að ákvörðunin um brottvísun Davíðs hafi komið honum í opna skjöldu og að hann hafi ekki verið hafður með í ráðum. Hann vísar einnig í leiðréttingabréf sem Davíð sendi frá sér í gær sem hann telur uppljóstra ólögmæti brottvísunarinnar.

„Tek ég mér þá afstöðu að standa með þessum leiðréttingum Davíðs og um brot meirihlutans í starfi,” segir Einar.

Afsögn Einars mun taka gildi frá og með 6. ágúst 2018.

Tilkynningu Einars má sjá í heild sinni hér að neðan

Afsagnarbréf úr framkvæmdarstjórn SÍF

Sent á framkvæmdarstjórn SÍF og fjölmiðla.

Það er ætíð margt sem miður fer.

Ég Einar Freyr Bergsson segi hér með störfum sem gjaldkeri Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Mun afsögnin taka gildi frá og með 6. ágúst 2018.

Þessi ákvörðun um afsögn hefur legið á herðum mínum allt frá því að meirihluti framkvæmdarstjórnar SÍF tók ákvörðun um að vísa formanni félagsins Davíðs Snæ Jónssyni á brott vegna meintra brota í starfi sínu sem formaður. Skrípaleikur meirihlutans líkir við pólitískri valdabaráttu í sjónvarpsþættinum House Of Cards, þar sem einstaklingar nýta lagaglufur til þess að koma sjálfum sér í valdastöður.

Í gær 31. júlí sendi Davíð Snær Jónsson leiðréttingarbréf til framkvæmdarstjórnar þar sem hann upplýsti um rangfærslur meirihluta framkvæmdarstjórnar í brottvísunarbréfi sem sent var út þann 24. júlí síðastliðinn af hálfu meirihlutans. Þessar upplýsingar uppljóstruðu um ólögmæti brottvísunarinnar og tek ég mér þá afstöðu að standa með þessum leiðréttingum Davíðs og um brot meirihlutans í starfi. 

Þessi ákvörðun meirihlutans um brottvísun formannsins kom mér í opna skjöldu, þar sem ég var ekki hafður með í ráðum um þessa draftísku ákvörðun meirihlutans, fyrr en í tölvupósti að morgni 21. júlí kl. 08:46. Mér þykir það óásættanlegt að stjórnarmenn geti tekið slíkar ákvarðanir á spjallsíðum og á símafundum, en ályktun sem þessi ætti að fara fram á stjórnarfundi þar sem meirihluti stjórnar kemur saman og ræðir málið eins og fullorðnir einstaklingar.

Í dag er ég staddur í Slóvakíu vegum sambandsins, en sný aftur heim mánudaginn næsta. Eftir að ég hef skilað af mér skýrslu af ferðinni mun afsögn mín taka gildi.

Vil ég sjálfur lýsa yfir vantrausti á meirihluta framkvæmdastjórnar fyrir að virða ekki lög og reglur sambandsins. Mér finnst framkvæmdarstjórn SÍF skulda mér fyrirgefningu og Davíð Snæ afsökunarbeiðni fyrir ályktun sína, þar sem Davíð hefur unnið óeigingjarnt starf í þágu SÍF frá því að hann tók við störfum.

Auglýsing

læk

Instagram