Geðheilbrigði framhaldsskólanema: Málþing um aðgengi sálfræðiþjónustu

Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, hagsmunafélag nemenda á landsvísu hefur um árabil barist fyrir auknu aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir nemendur og lýsir nú yfir verulegum áhyggjum af andlegri heilsu nemenda. Bendir félagið á að öll viðvörunarljós logi rauð og furðar sig á viðbragðsleysi stjórnvalda við þeim sláandi tölum sem berast úr öllum áttum.

Síðastliðinn vetur gerði félagið tvær kannanir, annars vegar úttekt á þeirri stoðþjónustu sem stendur nemendum til boða í þeim 31 skólum sem eiga aðild að SÍF, þ.e.a.s. nemendafélögin eru aðildarfélög SÍF og hinsvegar á þeirri sálfræðiþjónustu sem stendur nemendum til boða, innan skólanna og á heilsugæslum. Meðal niðurstaðna má nefna að boðið er upp á sálfræðiþjónustu í innan við helmingi skólanna og meðal biðtími eftir viðtali hjá sálfræðingi á heilsugæslu er 9,5 vikur.

Í tilefni að útgáfu skýrslunnar mun félagið standa fyrir hádegismálþingi fimmtudaginn 2.september sem ber yfirskriftina Geðheilbrigði framhaldsskólanema: Málþing um aðgengi að sálfræðiþjónustu.  Málþingið fer fram í Hinu húsinu, ungmennahúsi Reykjavíkurborgar að Rafstöðvarvegi 7-9 og er aðgengi þar mjög gott.

Málþingið er öllum opið en aðeins eru 50 sæti í boði og því þarf að skrá sig fyrirfram í gegnum meðfylgjandi slóð. Einnig verður því streymt á visir.is.

Dagskrá: 

10:30 – Setning málþings 

10:35 – 12:10 erindi:

Sigvaldi Sigurðarson, verkefnastjóri á skrifstofu SÍF – Í frjálsu falli

Guðrún Randalín, aðstoðarskólameistari Tækniskólans. – Kæri sáli – reynsla Tækniskólans af sálfræðiþjónustu innan skólans.

Fríður Reynisdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Menntaskólann við Hamrahlíð. – Heildstæð stoðþjónusta fyrir framhaldsskólanemendur. 

Júlíana Garðarsdóttir, sálfræðingur við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. – Að vinna í skólanum.

Aníta Þula Benediktsdóttir Cummings – Reynslusaga nemanda.

11:50 – 12:20 Hádegishlé – boðið verður upp á léttar veitingar.

Ávarp: Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

12:30 – 13:15 Pallborðsumræður

HÉR má finna Facebook-viðburð málþingsins, en þar mun hlekkur á streymið birtast þegar nær dregur.

Auglýsing

læk

Instagram