Aðalþing Sambands íslenskra framhaldsskólanema

Laugardaginn 12.september fór fram aðalþing Sambands íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, en í ljósi Covid aðstæðna var það haldið á vefsvæðinu zoom.

Þingið sótti stór og fjölbreyttur hópur nemenda úr fjölmörgum skólum víða að af landinu en auk þess að leggja línurnar í starfi félagsins eru þingin mikilvægur vettvangur fyrir fræðslu og einnig fyrir nemendur að deila reynslu sinni og læra hver af öðrum. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa og kynninga, ávarpaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra þingið og ræddi við nemendur um skólahald á tímum Covid en ljóst er að staða nemenda í faraldrinum mun á komandi mánuðum áfram verða eitt helsta áhersluatriðið í starfi félagsins.

Framkvæmdaáætlun komandi starfsárs var lögð fram til samþykktar en verkefnin eru meðal annars tengd lýðræði, málefnum nemenda af erlendum uppruna og nemenda með fatlanir. Kosið var í nýja framkvæmdastjórn til eins árs sem skipuð er sjö framhaldsskólanemum. Þau eru:

  • Auður Aþena Einarsdóttir – meðstjórnandi
  • Hermann Nökkvi Gunnarsson – alþjóðafulltrúi
  • Júlíus Viggó Ólafsson – forseti
  • Magnús Gunnar Gíslason – meðstjórnandi
  • Sara Dís Rúnarsdóttir – meðstjórnandi
  • Sigurþór Maggi Snorrason – varaforseti
  • Steinþór Óli Guðrúnarson – gjaldkeri
Auglýsing

læk

Instagram