Heineken tekur auglýsingu úr birtingu eftir ásakanir um rasisma frá Chance the Rapper

Heineken hefur tekið úr birtingu auglýsingu eftir að rapparinn Chance the Rapper sakaði brjórframleiðandann um rasisma. Sjáðu umrædda auglýsingu hér fyrir ofan.

Auglýsingin sýnir barþjón ýta bjórflösku til konu á bar. Flaskan ferðast framhjá fólki sem er dökkt á hörund áður en hún stoppar hjá konunni sem er talsvert ljósari á hörund. Slagorðið: „Sometimes lighter is better“ birtist svo.

Chance the Rapper sagðist á Twitter telja að fyrirtæki gefi viljandi út rasískar auglýsingar til að fá áhorf

„Ég ætti ekki að hjálpa til með því að vekja athygli á þessu en ég verð bara að segja: Þessi Heineken-auglýsing er hræðilega rasísk,“ sagði Chance the Rapper.

Auglýsing

læk

Instagram