Hvað eru mörg Coco Pops í einum pakka? Katla Guðbjörg tók sig til og taldi það fyrir þig

Katla Guðbjörg Gunnarsdóttir tók sig til og taldi öll Coco Pops-in sem eru í einum 375 gramma pakka af Coco Pops.

Hún segir í samtali við Nútímann að Donald Trump og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum hafi verið ástæðan fyrir talningunni.

Ég var búinn að vera frekar stressuð í vikunni fyrir þessu öllu saman og þegar ég er stressuð þá fer ég að telja eitthvað til þess að róa mig niður

https://twitter.com/Ketilll/status/796715307448549376

Katla segir að talningin hafi tekið sjö klukkutíma í heildina með einni pásu og að skipulag hafi skipt miklu máli í svona talningu.

„Ég tók alltaf hrúgu af Coco Pops og taldi það. Eftir að ég kláraði að telja hrúguna þá mátti ég borða hana,“ segir Katla. „Hrúgurnar voru allt milli 80 og 800 Coco Pops.“

Katla komst að því að 10.808 Coco Pops eru í einum pakka frá matvælaframleiðendunum Kellogg’s sem er mikið meira en hún bjóst við. „Það er mjög langt frá því,“ segir Katla. „Ég er að spá í að hafa samband við þann sem skrifaði að það væru 3.500 í einum pakka og leiðrétta hann.“

Auglýsing

læk

Instagram